1 hour 25 minutes
Some articles contain affiliate links (marked with an asterisk *). If you click on these links and purchase products, we will receive a small commission at no extra cost to you. Your support helps to keep this site running and to continue creating useful content. Thank you for your support!
Fjölkunnugur púki smíðar hræðilegan spéspegil, sem hefur þá náttúru, að gera allt það sem gott er og fallegt afskræmt og ljótt. Í ljótum púkaleik brotnar síðan spegillinn og brotin þyrlast um allan heim og gera illt hvar sem þau lenda. Tvö af glerbrotunum smjúga inn í hjarta drengsins Karls, sem áður var ljúfur og góður piltur. Leiksystir hans, Helga, skilur ekkert í umbreytingunni og verður afskaplega sorgmædd. Vetrardag nokkurn bindur Karl sleðann sinn aftan í stóran og glæsilegan sleða. Á honum reynist Snædrottningin sitja, og kyssir hún drenginn kuldakossum svo hann gleymir öllu sem honum var áður kært. Helga litla leggur af stað út í heiminni í leit að vini sínum, en á leiðinni eru ýmsir hrakningar. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.