4 minutes
Some articles contain affiliate links (marked with an asterisk *). If you click on these links and purchase products, we will receive a small commission at no extra cost to you. Your support helps to keep this site running and to continue creating useful content. Thank you for your support!
Þegar búið var að reka Adam og Evu úr Paradís urðu þau að vinna baki brotnu til að eiga í sig og á. Þau eignuðust mörg börn, fríð og ófríð og þegar Drottinn ákveður að heimsækja þau þrífur Eva allt hátt og lágt og sýnir Drottni börnin. Drottinn blessar öll börnin hennar Evu sem þykir Drottinn skipta gjöfum sínum á milli þeirra með ósanngjörnum hætti. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.