12 minutes
Some articles contain affiliate links (marked with an asterisk *). If you click on these links and purchase products, we will receive a small commission at no extra cost to you. Your support helps to keep this site running and to continue creating useful content. Thank you for your support!
Fátækur skraddarasveinn var á ferðalagi í atvinnuleit um ókunnugar slóðir þegar hann villist af leið. Hann klifrar upp í stóra eik og býr sig undir nóttina þegar hann sér ljósbjarma í fjarska. Hann ákveður að freista gæfunnar og gengur á ljósið. Til dyra kemur gamall og grár karl sem með semingi leyfir fátæka skraddarnum að gista. Um nóttina verður skraddarinn var við mikil læti og hefst þá atburðarrás sem gjörbreytir lífi hans. Hættuför skraddarans endar í stórum skrautlegum sal. Á gólfinu standa tvær glerkistur. Í annarri þeirra var smágerð eftirlíking af höll með öllur tilheyrandi og í hinni lá forkunnarfögur stúlka á álögum sem lögð voru á hana af dularfullum næturgesti, töframanni, sem með svikum og prettum hafði tekist að pranga sér inn í höllina. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.